Close Menu
Daily Guardian
  • Home
  • News
  • Politics
  • Business
  • Entertainment
  • Lifestyle
  • Health
  • Sports
  • Technology
  • Climate
  • Auto
  • Travel
  • Web Stories
What's On

Indonesia looks to Monaco to scale up maritime tourism

September 28, 2026

Norton Rose Fulbright names Laura Perlov Partner-in-Charge of Denver office

September 28, 2026

Salary.com Expands into Talent Management to Bring Compensation Intelligence to Talent Decisions

September 28, 2026

Dallas Filmmaker Daniel Gomez Celebrates Hispanic Heritage Month With Wong Place Wong Time, Now Streaming Free on Tubi

September 28, 2026

Schneider Electric unveils the world’s first fully Software-Defined Medium Voltage switchgear to accelerate the speed and scalability of AI factories

September 28, 2026
Facebook X (Twitter) Instagram
Finance Pro
Facebook X (Twitter) Instagram
Daily Guardian
Subscribe
  • Home
  • News
  • Politics
  • Business
  • Entertainment
  • Lifestyle
  • Health
  • Sports
  • Technology
  • Climate
  • Auto
  • Travel
  • Web Stories
Daily Guardian
Home » Nýr liðsfélagi í skemmtana- & framkvæmdastjórn Nova
Press Release

Nýr liðsfélagi í skemmtana- & framkvæmdastjórn Nova

By News RoomDecember 19, 20232 Mins Read
Nýr liðsfélagi í skemmtana- & framkvæmdastjórn Nova
Share
Facebook Twitter LinkedIn Pinterest Email

Renata Blöndal hefur verið ráðin í starf fararstjóra (Chief Strategy Officer) Nova og tekur hún jafnframt sæti í skemmtana- & framkvæmdastjórn hjá félaginu. Renata mun leiða stefnumótun Nova ásamt því að greina helstu vaxtartækifæri til framtíðar. Renata býr yfir viðamikilli reynslu á sviði stefnumótunar og vöruþróunar í ferðaþjónustu, fjártækni og smásölu. Hún kemur til Nova frá Arctic Adventures þar sem hún var framkvæmdastjóri sölu og þjónustu. Áður starfaði Renata hjá CCP, Meniga, Landsbankanum og Krónunni þar sem hún leiddi meðal annars þróun á Snjallverslun Krónunnar.

Renata er með M.Sc. gráðu í Management Science and Engineering frá Columbia háskóla í New York og B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- & forstjóri:
„Við fögnum því að fá góðan liðstyrk, en Renata mun taka við nýju hlutverki innan Nova sem felst í að stýra ferðinni þegar kemur að því að koma auga á og grípa vaxtartækifæri, ásamt því að leiða stefnumótun Nova. Við trúum því að tækifæri séu til staðar fyrir frekari vöxt Nova út fyrir fjarskiptageirann, og styður það við þá sýn okkar að vera fyrst inn í framtíðina með snjallari lausnir. Við viljum skora á okkur sjálf og aðra markaði, alveg eins og þegar Nova var stofnað. Vel heppnuð markaðssetning, góð þjónusta og forysta í innleiðingu nýjustu tækni hefur skilað Nova sterkri markaðshlutdeild og ánægðum og tryggum viðskiptavinum. Allir þessir þættir ásamt einstökum hópi starfsfólks hefur skilað félaginu miklum ávinningi og tekjuvexti undanfarin ár og er góður grunnur fyrir framtíðina. Renata mun styrkja Nova liðið enn frekar og hlakka ég mikið til að fá hana í liðið á nýju ári.“

Renata Blöndal:
„Það er virkilega spennandi að ganga til liðs við Nova og að fá tækifæri til að leiða stefnumótun félagsins. Ég hef fylgst lengi með Nova, vörumerkið er gríðarlega sterkt og fyrirtækjamenningin einstök. Þá sýna mælingar að ánægðustu viðskiptavinirnir séu hjá Nova. Ég kem því inn í sterka liðsheild en það eru ótal spennandi tækifæri til vaxtar, og ég hlakka mikið til að skella mér inn á dansgólfið og láta til mín taka.“

Um Nova
Nova var stofnað árið 2006 og er nú orðið eitt af stærstu og öflugustu fjarskiptafyrirtækjum landsins. Fyrirtækið á og rekur sína eigin virku innviði vítt og breitt um landið. Hjá Nova starfa 156 starfsmenn á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og Selfossi. Nova hlaut fyrr á árinu hæstu einkunn fjarskiptafyrirtækja í Íslensku ánægjuvoginni fjórtánda árið í röð.

  • Ný skemmtana- og framkvæmdastjórn Nova

Share. Facebook Twitter Pinterest LinkedIn Tumblr Email

Keep Reading

Indonesia looks to Monaco to scale up maritime tourism

Norton Rose Fulbright names Laura Perlov Partner-in-Charge of Denver office

Salary.com Expands into Talent Management to Bring Compensation Intelligence to Talent Decisions

Dallas Filmmaker Daniel Gomez Celebrates Hispanic Heritage Month With Wong Place Wong Time, Now Streaming Free on Tubi

Schneider Electric unveils the world’s first fully Software-Defined Medium Voltage switchgear to accelerate the speed and scalability of AI factories

Could AI Be President? SYVIC Opens Public Participation in AI and Government Exploration

WorldSkills Team Canada 2026 Celebrates Outstanding Results at WorldSkills Shanghai 2026

Lionel Brands Group Names Jennifer Bizeur Chief Marketing Officer

CubiCasa and Restb.ai bring faster floor plan delivery to some 500,000 real estate agents and brokers

Editors Picks

Norton Rose Fulbright names Laura Perlov Partner-in-Charge of Denver office

September 28, 2026

Salary.com Expands into Talent Management to Bring Compensation Intelligence to Talent Decisions

September 28, 2026

Dallas Filmmaker Daniel Gomez Celebrates Hispanic Heritage Month With Wong Place Wong Time, Now Streaming Free on Tubi

September 28, 2026

Schneider Electric unveils the world’s first fully Software-Defined Medium Voltage switchgear to accelerate the speed and scalability of AI factories

September 28, 2026

Latest News

The SaaSpocalypse that wasn’t, with Atlassian CEO Mike Cannon-Brookes

September 28, 2026

Could AI Be President? SYVIC Opens Public Participation in AI and Government Exploration

September 28, 2026

WorldSkills Team Canada 2026 Celebrates Outstanding Results at WorldSkills Shanghai 2026

September 28, 2026
Facebook X (Twitter) Pinterest TikTok Instagram
© 2026 Daily Guardian Canada. All Rights Reserved.
  • Privacy Policy
  • Terms
  • Advertise
  • Contact

Type above and press Enter to search. Press Esc to cancel.

Go to mobile version